eddaosk.com

Jólagjafaóskalisti
Tuesday, 02 December 2008

Jólagjafaóskalisti Eddu jólin 2008:

Bækur:
Þín stund (ný íslensk bók um förðun)
Náttúruvörur fyrir húð og hár (fæst amk hjá Eddu útgáfu)

Tölvuleikir:
Singstar ABBA (Playstation 2)
Mario Kart (Nintendo Wii)

DVD:
Sex and the city myndin

Annað:
Utanáliggjandi harður diskur eða eitthvað með góðu geymsluplássi til að geyma tónlistina mína
Gjafabréf í andlitsbað
OPI naglalakk (eitthvað bleikt eða rautt t.d.)
Party og co, nýja spilið (frá því í fyrra)
Flottir eyrnalokkar
Hlýir hanskar, t.d. með kanínuskinni eða fóðri


Hérna er svo Grétars listi:

Bækur: (Fást í Mál og Menningu)
Síðasta uppgötvun Einsteins
Áhætta, ákvarðanir og óvissa
Hugmyndabók
Austræn hugsun fyrir vestrænan huga
Þjóðhagfræði

Tölvuleikir: (Fást í BT, Max, Elko)
Warhammer 40k: Dawn of war
Warhammer Online

Spil: (Fást í Spilavinum)
Babylon
Rapidough
Uno

Vertu fyrst(ur) til að skrifa athugasemd

 
Kjóll
Tuesday, 04 November 2008
Ég hef ekki verslað lengi á Ebay, en datt inná þetta og fór að skoða kjóla. Var búin að finna nokkra sem mér fannst flottir en enginn fullkominn. Svo fór ég að leita betur og fann einn sem voru bara örfáar mínútur eftir af uppboðinu og vann hann á lægsta verðinu. Kostaði bara $17 með sendingu! Vonandi passar hann, get þá notað hann sem jólakjól kannski.

Hérna er hann, er hann ekki flottur:

Athugasemdir (1)

 
Október
Sunday, 26 October 2008
Best að uppfæra þetta öðru hvoru svo fólk haldi nú áfram að lesa. Það er búið að vera nóg að gera snyrtivörunum undanfarið, metsala búin að vera í október. Er búin að panta nokkrar nýjar vörur undanfarið, bæta aðeins við úrvalið fyrir jólin, og meira væntanlegt á næstunni. Svo fékk ég stærstu pöntunina hingað til í gær, en þá pantaði einhver kona frá Bandaríkjunum hvorki meira né minna en 30 augnskugga! Hún sagðist hafa séð þetta á YouTube, en það eru nokkrar umfjallanir um augnskuggana þar og hún sagðist hafa verið svo hrifin af litunum. Svo fyrir þá sem misstuð af þá kom umfjöllun í Fréttablaðinu 10.okt. Hægt er að skoða umfjallanirnar hér.

Við vorum annars í afmæli í dag hjá Óla litla, syni Bjarna bróður. En hann varð 1 árs pjakkurinn. Ágætt að komast aðeins útúr bænum (hann býr á Akranesi fyrir þá sem ekki vita).

Mér tókst að næla mér í heldur óspennandi pest sem er víst að ganga. En sem betur fer entist hún bara í 2 daga eða svo, en ég var smá tíma að fá lystina aftur.

Næstu helgina er stefnan svo tekin á sumarbústaðaferð með skezzunum (gamli vinahópurinn minn frá Selfossi). Ég tek að sjálfsögðu Singstar og Buzz með þannig að það verði stuð í bænum (eða sveitinni réttara sagt).

Athugasemdir (5)

 
Námskeið í brjóstsykursgerð
Monday, 22 September 2008

Ég fór á námskeið í brjóstsykursgerð á vegum nammiland.is í gær. Þeir voru að auglýsa eftir fólki sem vill koma á námskeið og svo halda námskeið fyrir aðra. Þannig að núna get ég kennt svona námskeið, endilega látið fólk vita af þessu. Hér er auglýsingin:

Langar þig að læra að búa til þinn eigin brjóstsykur?
Skelltu þér þá á námskeið í brjóstsykursgerð!

Námskeiðin fara fram í litlum hópum (4-6 manns) og eru um 3 klst. Upplagt er að halda námskeið t.d. í saumaklúbbum, fjölskyldu- eða vinahópum. Þá er komið á staðinn með öll tól og tæki sem þarf, eða hópurinn mætir á annan ákveðinn stað ef það hentar betur. Við finnum svo tíma sem hentar öllum til að halda námskeiðið.

Brjóstsykursgerð er skemmtileg og skapandi og upplagt að læra fyrir jólin þannig að fjölskylda eða vinir geta átt skemmtilega og gómsæta stund saman. Einnig er gaman að geta boðið uppá heimatilbúinn brjóstsykur fyrir gesti eða í afmælum.

Námskeiðið kostar 5.000 kr. pr. mann.
Innifalið í námskeiðsgjaldi er allt hráefni og handbók og þátttakendur fá brjóstsykur með heim.

Á námskeiðinu gerum við 4 tegundir:
Jarðaberjabrjóstsykur - Bananabrjóstsykur - Karamellubrjóstsykur – Lakkrísbrjóstsykur

Image

Vertu fyrst(ur) til að skrifa athugasemd

 
Snyrtivöruframleiðsla, heimasíðugerð og afmælisstúss
Sunday, 07 September 2008
Það er svosem búið að vera nóg að gera undanfarið þó ég hafi ekki verið að vinna. Ég er búin að nýta tímann og vera á fullu í að búa til nýjar vörur fyrir EÓ Cosmetics. Það nýjasta eru fljótandi gloss, farði og fullt af nýjum lyktum í body kremunum. Það er hægt að sjá þetta allt á EÓ Cosmetics síðunni að sjálfsögðu.

Svo er ég búin að vera að vinna í tveimur heimasíðum nýlega, og er að vinna í þeirri þriðju en þar sem hún er ekki tilbúin enn þá sýni ég hana ekki strax. En hinar tvær eru jafn.is og jcirvk.com/namskeid. Ef þið vitið um einhvern sem vantar heimasíðu á góðu verði þá hafið þið að sjálfsögðu samband við mig um hæl er það ekki?

Grétar átti svo afmæli í gær (28 ára) þannig að ég stóð sveitt í bakstri, en afar hans og ömmur og foreldrar hans komu í kaffi í dag. Ég bauð uppá Daim ostaköku, súkkulaðiköku og heitan brauðrétt. Allir virtust vera sáttir og sælir eftir kræsingarnar.

Ég bauð svo Grétari á Austur Indía fjélagið en þetta er sko BESTI maturinn í bænum! Ef þú hefur ekki farið þarna áður þá skipa ég þér hér með að prófa þennan stað. Hann er svona í fínni kantinum en ekkert hræðilega dýr, fer eftir hvað maður fær sér. En maturinn bráðnar í munninn á manni, það er eins og þeir handnuddi kjúklinginn hann er svo mjúkur!

Athugasemdir (1)

 
Montréal ferð
Sunday, 17 August 2008
Þá erum við komin heim eftir vikudvöl í Montréal (komum reyndar aðfaranótt laugardags). Ferðin var mjög fín í alla staði fyrir utan nokkra öskrandi krakka sem sátu í næstu sætum í flugvélinni, og óvenju marga betlara í borginni. Hef hvergi séð svona marga betlara í þeim borgum sem ég hef komið til. Fyrir þá sem ekki vita þá vorum við að heimsækja Jónu æskuvinkonu mína sem býr þarna úti, en hún vinnur líka sem fararstjóri fyrir Heimsferðir í sumar þannig að hún var fararstjórinn okkar, mjög hentugt!

Við náðum að gera helling:
  • Fara í Casino, sem var mjög spes og skemmtileg reynsla
  • Fara í skoðunarferð um borgina (þar sem Jóna var fararstjóri). Þar voru skoðaðir ýmsir staðir eins og gamli bærinn, óratorían, Mont-Royal fjallið, keyrt á formúlubrautinni o.fl.
  • Fara í neðanjarðarborgina, en þarna eru heil borg neðanjarðar. Þarna er hægt að versla og eru mörg samliggjandi mall, eins og margar Kringlur
  • Fara í bíó, eitt kvöldið vorum við svo þreytt að okkur langaði bara að sitja á rassinum
  • Fara í piknikk hjá Mont-Royal fjallinu, en alla sunnudaga er svokallað tam-tam þar sem fólk spilar á bongótrommur
  • Skoða Kínahverfið, Litlu-Ítalíu og gamla bæinn
  • Fara í stóran grasagarð, eyddum um hálfum degi þar
  • Versla nóg auðvitað
  • Fara í pool
  • Fara út að borða á mexíkóska, kínverska, indverska, ítalska staði o.fl.
Veðrið var mjög gott allan tímann, oftast í kringum 20-25 stiga hiti fyrir utan einn daginn sem var aðeins heitiari. Þetta er skemmtileg borg og nóg að gera þarna, get alveg mælt með að skoða hana.

Myndirnar eru komnar í myndaalbúmið. Ég mæli með að skoða hverja mynd fyrir sig, það eru útskýringar við sumar myndirnar sem sjást ekki annars.

Athugasemdir (3)

 
Nóg að gera
Sunday, 27 July 2008

Eru nokkkuð allir búnir að gefast upp og hættir að lesa þetta? Það er nóg að gera hjá mér þessa dagana, bæði í makeup bransanum og heimasíðugerðinni. Það eru tvær heimasíður sem liggja fyrir sem ég þarf að gera á næstunni (í frítímanum). Svo er ég á fullu í makeup framleiðslunni, er að bæta við dáldið af nýjum vörum á næstunni, og gengur vel að selja líka. Hef fengið nokkrar sölur í gegnum síðu sem heitir Etsy sem ég er að selja á, en það er síða þar sem að hægt er að selja handgerða hluti. Þannig að ég er búin að selja m.a.til Ítalíu og USA.

Það var íslensk stelpa var gera "review video" á YouTube um  augnskugga sem hún keypti hjá mér, sem er mjög jákvætt því það er ekki verra að fá góða umfjöllum og auglýsingu. Hún var alveg yfir sig ánægð með augnskuggana. Ætla svo að halda smá snyrtivörukynningu fyrir stelpurnar í næstu viku.

Annars skrapp ég í golf í dag með Bjarna bróður á sveitavell nálægt Akranesi. Þetta var fyrsti leikurinn sem ég spilaði í sumar, gekk svona upp og ofan, en þetta kemur víst með æfingunni. Svo styttist óðum í Kanadaferðina okkar Grétars, þannig að það er margt spennandi að gerast!

Athugasemdir (1)

 
Snyrtivöruuppskriftakeppni
Tuesday, 24 June 2008
Held ég hafi ekki verið búin að segja frá því hérna, en fyrir nokkrum vikum tók ég þátt í "uppskriftakeppni" fyrir snyrtivörur. Hún var þannig að allir sem eru á ákveðnum snyrtivöruspjallþræði sem ég er á máttu taka þátt. Maður fékk senda sjö svokallaða grunnliti sem eru notaðir til að búa til t.d. augnskugga, kinnalit og fleira, svo blandar maður litina sjálfur og sendir inn uppskriftina. Allir sem tóku þátt fengu send 33 sýnishorn, og allir hafa aðgang að uppskriftunum frá hinum. Þannig að ég má nota uppskriftirnar frá öðrum og aðrir mega nota mínar uppskriftir.

Ég sendi inn uppskriftir að þremur augnskuggalitum, og þessa dagana er hægt að kaupa þá tímabundið á síðunni. Þetta er síða sem selur allt sem maður þarf til að búa til eigin snyrtivörur, og ég versla oft þarna. Hérna eru augnskuggarnir mínir. Gaman að þessu :o) Þessa þrjá liti er að sjálfsögðu líka hægt að kaupa á eocosmetics.com (Teal, Purrrple og Lime).

Þetta eru sýnishornin sem þeir sem tóku þátt fengu, kannski bý ég til eitthvað af þessum litum síðar:
Image

Athugasemdir (1)

 
EÓ Cosmetics
Tuesday, 10 June 2008
Ég er búin að gera heimasíðu fyrir snyrtivörurnar, reyndar dáldið síðan en ég er búin að vera að bæta inná hana smám saman. Á eftir að bætast meira við á næstunni. Síðan er www.eocosmetics.com, ég nefni vörurnar EÓ Cosmetics. Núna verða náttúrulega allir að kaupa eitthvað, ég sé sko alveg hverjir eru að skoða þetta og fylgist með :P

Það er bara hægt að borga með millifærslu eins og er, og annaðhvort fá sent í pósti eða sækja til mín. Þeir sem þekkja mig geta haft samband við mig til að fá kóða sem á að slá inn á síðuna til að fá smá afslátt. Þetta er allt í nýjustu tækni að sjálfsögðu.

Athugasemdir (5)

 
Body butter og fleira
Tuesday, 03 June 2008

Úbbs, ekki búin að vera alveg nógu dugleg að skrifa... En allt gengur sinn vanagang svosem, nóg að gera í vinnu og svona. Ég fór á Sex and the city myndina síðustu helgi, og lítur út fyrir að ég fari aftur á hana í næstu viku.

Er loksins búin að fá stóra sendingu fyrir snyrtivöruframleiðsluna þannig að núna er ég farin að búa til body butter sem er reyndar smá vinna, getur tekið uppí 1 1/2 tíma að gera hvern skammt! Fékk 4 mismunandi ilmefni með sendingunni: Coconut, Sweet Vanilla, Orange Rain og Monkey farts (tropical lykt). Er bara búin að prófa Coconut og Monkey farts ennþá. Kremið sjálft svínvirkar, húðin á mér er strax orðin betri, hef lengi verið með svona litlar rauðar bólur á höndunum og fótunum en þær hafa minnkað eftir að ég fór að nota kremið. Það er hægt að velja úr nokkur hundruð ef ekki nokkur þúsund mismunandi lyktum á netinu, svo get ég litað þetta líka.

Svona lítur þetta út:
Image Image


Athugasemdir (2)

 
<< Byrja < Fyrri 1 2 3 4 5 6 Næsta > Endir >>

Niðurstöður 1 - 10 af 55